6 mar. 2006Logi Gunnarsson, landsliðsmaður og leikmaður Bayreuth í Þýskalandi, gerði 34 stig fyrir Bayreuth á laugardaginn er liðið valtaði yfir Coocoon Baskets Weiden, 106–71, í suðurriðli þýsku 2. deildar. Þá hefur Logi gert alls 77 stig í tveimur leikjum, en fyrr í vikunni setti hann niður 43 stig gegn TSV Tröster, þar af 40 stig í seinni hálfleik. Logi er níundi stigahæsti leikmaður deildarinnar með 19,3 stig að meðaltali í leik, en Bayreuth er enn í 5. sæti deildarinnar. Þess má geta að í Fréttablaðinu í dag er ítarlegt viðtal við Loga Gunnarsson í tilefni af framgöngu hans í þýsku deildinni að undanförnu.. Af [v+]http://www.karfan.is/[v-]karfan.is[slod-] þar sem einnig er afbragð umfjöllun um 1. deild karla og fjölliðamót yngri flokka í Njarðvík, ásamt myndum frá því móti. Þar héldu Njarðvíkingar áfram sigurgöngu sinni sem varað hefur í allmörg ár.