28 feb. 2006Á hverju ári stendur ÍSÍ fyrir fjölmörgum þjálfaranámskeiðum. ÍSÍ heldur t.d. þrjú þjálfaranámskeið á fyrsta stigi í mars í Reykjavík, en auk þess eru fyrirhuguð námskeið á Akureyri og víðar um landið. Lágmarksaldur þátttakenda á þessi námskeið er 16 ár. Hvert námskeið er 20 kennslustundir, að meginhluta bóklegt, og er ætlað leiðbeinendum barna í íþróttum. Námskeiðin í Reykjavík hefjast á föstudegi kl. 17:00 og áætluð lok eru á sunnudegi kl. 15:00. Kennt verður í fundarsölum ÍSÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Dags. Námskeið Verð kr. Skráning í síðasta lagi 3.– 5. mars Þjálfari 1a – almennur hluti 12.000,- Fimmtudaginn 2. mars 10.– 12. mars Þjálfari 1b – almennur hluti 8.000,- Miðvikudaginn 8. mars 24.– 26. mars Þjálfari 1c – almennur hluti 8.000,- Miðvikudaginn 22. mars Skráning og frekari upplýsingar um þessi námskeið og þjálfaramenntun ÍSÍ er á heimasíðu ÍSÍ. Þar er einnig að finna lista yfir önnur námskeið sérsambanda ÍSÍ og þá fræðsluviðburði sem eru á dagskrá á komandi vikum. Af [v+]http://www.olympic.is/[v-]vef ÍSÍ[slod-].