17 feb. 2006Grindavík og ÍS mætast í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ & Lýsingar kvenna klukkan 14.00 í Laugardalshöllinni á laugardaginn og verður þetta fjórða viðureign liðanna á tímabilinu. Grindavík hefur unnið tvo af þremur leikjum liðanna en allar hafa þær verið í Iceland Express deildinni. Í Lesningunni hér til hliðar má sjá samanburð á tölfræði liðanna og leikmanna þeirra í þessum þremur leikjum.