2 feb. 2006Epiphanny Prince leikmaður Murry Bergtraum menntaskólans í New York fylki skoraði hvorki fleiri né færri en 113 stig í 137-32 sigri skólans á Brandeis menntaskólanum í gærkvöldi og sló þar með stigametið í menntaskólakeppni stúlkna í Bandaríkjunum. Prince skoraði 29 stig í fyrsta leikhluta og var komin með 58 stig í hálfleik. Hún svo algjörlega lausan tauminn í síðari hálfleik, sérstaklega eftir að hún var komin yfir 80 stig eftir þiðja leikhluta. Fyrra metið átti frægðarhallarmeðlimurinn og Raggie Miller systirin, Cheryl Miller, en hún skoraði á sínum tíma 105 stig fyrir Riverside Polly skólann í Kaliforníu árið 1982. Þess má geta að Lisa Leslie hefði væntalega slegið það met hressilega árið 1990, þegar hún var komin með 101 stig í hálfleik í leik með Moningside skólanum í LA, hefði South Torrance ekki neitað að leika síðari hálfleikinn. Piltametið í bandarískum menntaskólum er 135, sem Danny Heater skoraði fyrir Burnesville skólann á V-Virginíu árið 1960. Kobe Bryant skoraði sem kunnugt er 81 stig fyrir LA Lakers fyrir nokkrum dögum og slá þá öllum við í NBA-deildinni frá upphafi, að Wilt Chamberlain undanskildum. Chamberlain skoraði sem kunnugt er 100 stig fyrir Philadelphia 76 ers árið 1962. Hér á Íslandi er stigametið í einum leik í mfl. karla einnig 100 stig, en það setti Danny Shouse í leik með Ármanni gegn Skallagrím 1. desember 1979. Í úrvalsdeildinni á John Johnson stigametið, en hann skoraði 71 stig fyrir Fram gegn ÍS 17. nóvember 1979.