2 feb. 2006Sigmundur Már Herbertsson FIBA-dómari hélt áleiðis til Belgíu í morgun, en annað kvöld dæmir hann annan leik Dexia Namur frá Belgíu og BC Volgaburmash (VBM SGAU) frá Samara í Rússlandi í 16 liða úrslitum EuroLeague kvenna. Í liði Volgaburmash er nýkjörinn leikmaður ársins í Evrópu, Maria Stepanova. Rússneska liðið vann fyrri leik liðanna á heimavelli sínum í Samara, 75-52, og getur tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum með sigri annað kvöld. Sigri hins vegar Dexia Namur kemur til þriðja leiks liðanna. Maria Stepanova hefur skorað 13 stig og tekið 11,4 fráköst að meðaltali í EuroLeague í vetur. Þessi hávaxni leikmaður, 202 sm á hæð, skoraði 18 stig og hirti 8 fráköst í fyrri leik liðanna. Það er mikill heiður fyrir Sigmund að fá að dæma hjá besta leikmanni Evrópu og að auki mikil sárabót eftir fýluferðina í síðustu viku, þegar hann var fastur í Kapmannahöfn á leið sinni til St. Pétursborgar.