29 jan. 2006Tveimur leikjum sem vera áttu í kvöld hefur verið frestað vegna ófærðar. Flug hefur að mestu legið niðri í dag og ekki hefur enn verið hægt að fljúga til Ísafjarðar eða Egilsttaða. Leik Hattar og Snæfells í Iceland Express deild karla sem vera átti á Egilsstöðum í kvöld hefur verið frestað til morguns. Þá hefur leik Stjörnunnar og KFÍ í 1. deild karla verið frestað til þriðjudags.