27 jan. 2006Á fundi tækninefndar FIBA í síðustu viku var Svisslendingurinn Marcel Pfeuti heiðraður fyrir einstakt framlag sitt til körfuboltans, en hann er handhafi dómaraskírteinis nr. 1 hjá FIBA. Marcel Pfeuti var fyrsti alþjóðlegi dómarinn og hann dæmdi á fyrsta Evrópumeistaramótinu sem haldið var í Genf árið 1935 og á Ólympíuleikunum í Berlín 1936, sem og leikana í London 1948. Þá dæmdi hann á fyrsta heimsmeistaramóti FIBA í Buenos Aries í Argentínu árið 1950, en á því móti var Borislav Stankovic fyrrum framkvæmdastjóri FIBA meðal keppenda fyrir Júgóslavíu. Pfeuti, sem nú er orðinn 91 árs gamall, hætti að dæma árið 1970 og síðasti leikur hans í alþjóðakeppni var leikur Ak Sofia gegn Slavia Prag í Evrópuerkeppni félagsliða sem var hans 350. alþjóðaleikur. Til minningar um glæstan feril fékk Pfeuti innrammaða mynd af leikskýrslunni úr leik leik Brasilíu og Maxíkó um bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í London 1948, en þan leik dæmdi Pfeuti. Hann var lengi í tækninefnd FIBA og var sérstakur ráðgjafi Williams Jones fyrsta framkvæmdastjóra FIBA í þróun á leikreglunum. Pfeuti segir að þótt leikurinn hafi breyst mikið hafi áhugi hans á körfubolta aldrei dvínað og hann noti enn hvert tækifæri til að komast á leiki.