19 jan. 2006Nú fer að líða að lokum verkefnisins „Sports, Media and Sterotypes“ eða „Íþróttir, fjölmiðlar og staðalímyndir“ sem unnið hefur verið að síðan í nóvember 2004. Verkefnið er fjölþjóðlegt og undir stjórn Jafnréttisstofu en samstarfsaðilar koma frá stofnunum í Noregi, Austurríki, Litháen og Ítalíu. Samstarfsaðilar verkefnisins á Íslandi eru Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri, námsbraut í fjölmiðlafræði við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands, Samtök íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Verkefnið samanstendur af rannsókn sem gerð var í fimm Evrópulöndum á staðalímyndum og endurspeglun kynjanna í íþróttum og íþróttafréttum. Niðurstöður rannsóknarinnar eru notaðar til að hanna fræðsluefni fyrir íþróttafréttamenn, íþróttakennara og þjálfara, sem gefið er út á margmiðlunarformi. Markmið fræðsluefnisins er að hvetja til breytinga á birtingamyndum kynjanna í íþróttum og íþróttafréttum með því að auka meðvitund um áhrif einsleitrar endurspeglunnar af íþróttakonum og körlum. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.jafnretti.is/sms. Lokaráðstefna verkefnisins verður haldinn á Hótel Loftleiðum Reykjavík þann 20. janúar næstkomandi. Ráðstefnan er öllum opinn án endurgjalds, en á henni verða niðurstöður rannsóknarinnar kynntar sem og fræðsluefnið. Hægt er að tilkynna þátttöku á netfangið jafnretti@jafnretti.is. fyrir 19. janúar. Ráðstefnan fer fram á ensku.