12 jan. 2006Vefur ÍR-inga var valinn besti vefur desember mánaðar sl. Sigurgeir Geirsson vefstjóri ÍR-inga fékk verðlaunin afhent í dag. Það var einkum frábært jóladagatal sem gerði útslagið í valinu að þessu sinni. Frumlegar og skemmtilegar myndir Gunnars Sverrissonar ljósmyndara og aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla, gáfu jóladagatalinu fagmannlegan blæ.