12 des. 2005Guðjón Skúlason var í dag ráðinn þjálfari kvennalandsliðsins og er samningurinn til tveggja ára. Framundan eru aukin verkefni hjá kvennaliðsliðinu, sem meðal annars mun taka þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn. Í febrúar nk. verður dregið í riðla í Evrópukeppninni, en leikirnir munu fara fram í september 2006 og 2007. Árið 2007 mun liðið einnig taka þátt í Smáþjóðaleikum og árið eftir í Norðurlandamóti.