12 des. 2005Dregið verður í 16 liða úrslitum karla og kvenna í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar þriðjudaginn 13. desember 2005 kl. 13.00 í fundarsal ÍSÍ. Í 16 liða úrslitum karla eru eftirfarandi lið í pottinum eftir sigra í 32 liða úrslitum: Haukar, Valur, Keflavík, Skallagrímur, UMFG, KR B, Breiðablik, Þór Þorlákshöfn, UMFN, Þór Akureyri, Hamar/Selfoss, Snæfell, Tindastóll, KR, Höttur, Valur B. Keppni í kvennaflokki hefst með 16 liða úrslitum. Liðin í pottinum eru: ÍS, Skallagrímur, KR, ÍR, Breiðablik, Keflavík, KFÍ, Fjölnir, Keflavík B, UMFH, ÍA, UMFG, UMFL, Tindastóll, Haukar, Haukar B. Leikirnir fara fram 7. og 8. janúar.