1 des. 2005Aganefnd KKÍ hefur dæmt Jón Orra Kristjánsson leikmann Þórs Ak. í eins leiks bann vegna brottvísunar sem hann hlaut í leik Haukar og Þórs í Iceland Express-deildinni sl. fimmtudag. Jón var í kjölfarið kærður til aganefndar fyrir sérlega grófan leik eða ofbeldi. Bannið tekur gildi frá og með hádegi föstudaginn 2. desember og verður Jón Orri því ekki með Þórsurum þegar þeir taka á móti Hamri/Selfossi á sunnudaginn kemur í Iceland Express-deildinni. Kæru á hendur ÍBV var vísað frá á fundi nefndarinnar.