26 nóv. 2005Breskur körfubolti mun á næstu sex árum fá framlag frá íþróttasambandinu þar í landi sem nemur 1 milljón punda á ári, eða tæplega 110 milljóna ísl. kr. Ástæðan er sú að Ólympíuleikarnir árið 2012 verða haldnir í London og þar með á Bretland rétt á þátttöku í körfuknattleikskeppni leikanna. Breskur körfubolti hefur ekki verið hátt skrifaður hingað til og enska sambandið hefur átt í miklum rekstarerfiðleikum að undanförnu. Af þeim sökum tók enska landsliðið ekki þátt í B-deild Evrópukeppninnar sem lauk nú í haust og unglingaliðið hafa heldur ekki tekið þátt í EM af fullum krafti. En nú eru horfur á að betri tímar séu framundan með tilkomu Ólympíuleikanna. Breska landsliðið hefur einu sinni áður tekið þátt í Ól. Það var árið 1948 þegar leikarnir voru síðast haldnir í London, en þá tapaði liðið öllum fimm leikjum sínum. Þá hafa nokkrir þekktir leikmenn lýst yfir áhuga á að leika með liðinu á Ól. Luel Deng, leikmaður Chicago Bulls, er þar frestur í flokki, en hann er uppalinn í Londun og með breskt vegabréf, þrátt fyrir að vera fæddur í Súdan. Deng ætlar einni að sannfara liðsfélaga sinn í Bulls, Ben Gordon sem fæddur er í London, um að gera slíkt hið sama. Þar að auki eru í dag fjöldi bresk ættaðra leikmanna í bandarískum mennta- og háskólum, sem væntanlega verða á hátinda ferils síns eftir 7 ár. Nýjasta, en ekki hvað sísta trompið fyrir breska körfuboltann, er yfirlýsing Steve Nash þess efnis að hann myndi gjarnan vilja koma nálægt þessu verkefni á einhvern hátt. Nash, sem er fæddur í S-Afríku, en á enska pabba og velska móður og hefur breskt vegabréf, er sem kunnugt er kanadískur ríkisborgari. Nash er 31 árs og lék með kanadíska landsðinu á Ólympíuleikunum á Syndney 2000 þar sem liðið komst í 8-liða úrslit. Hann hefur hefur áhuga á að koma nálægt þjálfun breska liðsins á einhvern hátt 2012, en þá verður hann að öllum líkindum hættur að leika sjálfur. Nash er mikill áhugamaður um knattspyrnu og heimsækir England á hverju sumri með fjölskyldu sinni og fylgist þá grannt með uppáhaldsliðinu sínu, Tottenham Hotspur. Nánar á [v+]http://www.fiba.com/pages/en/news/latest_news_article.asp?r_act_news=10113[v-]vef FIBA[slod-].