17 nóv. 2005Þriggja ára samningur milli KKÍ og Vífilfells, þess efnis að fyrirtækjabikarkeppnin muni bera nafn Powerade orkudrykksins næstu þrjú árin, var undirritaðu í gær. Það voru þeir Ólafur Rafnsson formaður KKÍ og Haukur S. Sigurvinsson vörumerkjastjóri Powerade hjá Vífilfelli sem undirrituðu og handsöluðu samninginn.