14 nóv. 2005Undanúrslit í Powerade-bikar karla fara fram í Laugardalshöll á föstudaginn kemur. Úrslitaleikurinn verður síðan daginn eftir ásamt undanúrslitum kvenna. Fyrri leikur kvöldsins á föstudaginn verður viðureign Fjölnis og KR kl. 18:30 og síðan mætast Keflavík og Njarðvík kl. 20:30. Á laugardag verða þrír leikir á dagskrá og verða tveir þeirra í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Kl. 12:00 mætast Keflavík og ÍS í undanúrslitum kvenna og kl. 14:15 mætast Haukar og Grindavík. Sá leikur verður sýndur beint ásamt úrslitaleik karla, sem hefst kl. 16:10. Úrslitaleikur kvenna fer fram 10. desember og verður hann einnig sýndur í Sjónvarpinu.