12 nóv. 2005Mótanefnd KkÍ hefur tekið þá ákvörðun að víxla heimaleikjum Hattar og UMFG í Iceland Express-deildinni, þar sem ekki er öruggt að hægt verði að leika heimaleik í Íþróttahúsinu á Egilsstöðum sunnudaginn 13. nóvember nk. vegna leka á þaki hússins. Því verður leikur UMFG og Hattar (heimaleikur UMFG) leikinn í Grindavík sunnudaginn 13. nóvember kl. 19.15 og leikur Hattar og Grindavíkur (heimaleikur Hattar) leikinn 12. febrúar 2006 kl. 19.15