10 nóv. 2005Eins og undanfarin ár mun körfuknattleiksdeild Fjölnis, í samvinnu við Hópbíla ehf., standa fyrir stórmóti fyrir yngstu iðkendur körfubolta þ.e.a.s. fyrir drengi fædda 1995 og síðar og stúlkur fæddar 1994 og síðar. Mótið verður helgina 26.-27. nóvember og verður leikið í íþróttamiðstöðinni Dalhúsum, íþróttahúsi Borgaskóla og í íþróttahúsi Rimaskóla. Met þátttaka var á mótinu í fyrra. Auk þess að leika nokkra leiki munu mótsgestir fara í bíó, taka þátt í kvöldvöku, fara í sund, sporðrenna pizzum o.s.frv. Þátttaka tilkynnist til Benedikts Guðmundssonar í síma 897-8311 eða bg@fjolnir.is fyrir 11. nóvember n.k.