17 okt. 2005Fréttaþyrstir geta fengið nýjustu fréttir frá KKÍ eftir ýmsum leiðum, og ber helst að nefna póstlista KKÍ og RSS veitu KKÍ. Við látum þig vita þegar ný frétt eða grein birtist eða tölfræði leiks er sett inn. Póstlisti Ef þú skráir netfangið þitt hjá Fréttaveitu KKÍ getur þú fengið tilkynningu í tölvupósti um nýja frétt, nýja grein eða nýjustu tölfræði úr leikjum dagsins. RSS KKÍ hefur boðið upp á RSS veitur fyrir fréttir og greinar frá því síðla árs 2002. RSS er notað til að gefa út yfirlit yfir nýjar fréttir á vef. RSS skjal frá KKÍ inniheldur fyrirsagnir nýjustu frétta og greina á KKÍ.is og slóðir að þeim. RSS er hægt að lesa með þar til gerðum hugbúnaði, auk þess sem hægt er að skrá sig á vefi sem gegna sama hlutverki. Nánari upplýsingar er á [v+]http://www.kki.is/frettaveita.asp[v-]fréttaveitu[slod-].