14 okt. 2005Breiðabliksmenn í Kópavogi munu halda körfuboltadag, á morgun laugardag, í íþróttahúsi sínu, Smáranum í Kópavogi. Hátíðin hefst kl. 14:00. Samhliða hátíðinni er fjölliðamót í 8. flokki karla, B-riðill í Smáranum um helgina. Tónlistarmennirnir Hreimur Örn Heimisson og Vignir Snær Vigfússon munu leika og syngja fyrir gesti kl. 14:30 en kl. 15:00 munu þeir kappar stjórna vítakeppni og stinger skotkeppni auk þess sem þeir munu leika einn á einn við gesti. Þess má geta að Hreimur er liðtækur körfuknattleiksmaður og leikur með Dímon í 2. deild karla. Körfuboltadagurinn er í boði Powerade og Lion Bar og munu gestir fá að bragða á þeim kræsingum þegar húsið opnar kl. 14:00.