4 okt. 2005Eins og sagt var frá í [v+]http://www.kki.is/frettasafn.asp?Adgerd=ein_frett&Recid=2565[v-]frétt hér á vefnum í maí sl.[slod-] hefur FIBA hrundið af stað sérstöku átaki til að fjölga konum í dómgæslu. Í dag er fjöldi kvenna aðeins 5% FIBA-dómara, en stefnt er að því að koma því hlutfalli í 10% árið 2007. Hlutfall kvenna í dómgæslu er ekki í neinu samræmi við fjölda kvenkyns iðkenda í íþróttinni. Fyrsta áþreyfanlega aðgerðin í þessu sambandi var nú í september þegar haldið var sérstakt dómaranámskeið fyrir konur í tengslum við 4. alheimsleika múslimskra kvenna, sem haldnir voru í Theheran í Íran . Alls tóku 23 konur frá Íran, Írak, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Marokkó, Oman og Tajikistan þátt í námskeiðinu. Alls voru sex FIBA dómarar útskrifaðir af námskeiðinu sem var í einu og öllu eins og önnur námskeið fyrir verðandi FIBA-dómara. “Við erum mjög ánægð með að fyrsta skrefið í því að fjölga konum í dómgæslu hafi verið stigið,” sagði Lubomir Kotleba íþróttafulltrúi FIBA að námskeiðinu loknu. Honum til aðstoðar við framkvæmd námskeiðsins var Karolina Andersson FIBA-dómari frá Finnlandi. Þrátt fyrir að fjölga eigi konum í dómgæslunni verða gerðar námkvæmlega sömu kröfur til þeirra og karlanna og engir kynjakvótar eru á döfinni. “Ég er algjörlega á móti kynjakvótum í dómgæslu. Eini rétti mælikvarðinn á einstakling í dómgæslu er geta hans til að dæma. Af hverjum 1.000 ungum dómurum verða til 50 góðir dómarar, 10 mjög góðir og 1 afburða dómari. Til þess að eignast frábæra kvendómara þarf því að breikka undirstöðuna,” segir Kotleba.