30 sep. 2005Útsendingar NBA TV hefjast á Digital Íslandi laugardaginn 15. október. Þetta eru góðar fréttir fyrir alla áhugamenn um körfubolta en leikmenn í NBA eru þeir bestu í heimi. NBA TV sýnir hundruð leikja í beinni útsendingu auk ótal þátta um körfubolta. Ráðgert er sýna frá 170 leikjum á komandi keppnistímabili en deildin hefst í byrjun nóvember. Til viðbótar verða sýndir tæplega 100 leikir frá úrslitakeppninni auk leikja í kvennadeildinni, WNBA. Fram undan er því sannkölluð körfuboltaveisla í vetur en NBA deildin hefst 1. nóvember þar sem allar helstu körfuboltastjörnur veraldar verða í eldlínunni. Í þeim hópi eru kappar eins og Tim Duncan, Shaquille O’Neal, Dwyane Wade, Richard Hamilton, LeBron James og Kobe Bryant. NBA TV verður í Sportpakkanum á Digital Íslandi. Rétt er að taka fram að umfjöllun Sýnar frá NBA verður með sama sniði og hefur verið. (Fréttatilkynning frá 365 ljósavakamiðlum)