30 sep. 2005Íslandsmótið í körfuknattleik 2005-2006 hefst nú um helgina með 1. umferð fjölliðamóta yngri flokkanna. Mót helgarinnar verða í Kópavogi, Njarðvík, Sandgerði, Keflavík, Reykjavík og Sauðárkróki. Á sunnudaginn er síðan leikur FSU og KR í unglingaflokki karla á dagskrá í Iðu á Selfossi kl. 19:15 en það er fyrsti deildarleikurinn í niðurröðun vetrarins. Þess má geta að alls verða 148 deildarleikir á dagskrá í október mánuði, en deildarleikir eru þeir leikir sem dómaranefnd KKÍ raðar dómurum á. Í næstu viku hefst síðan keppni í Hópbílabikar kvenna með leikjum Breiðabliks og Hauka á þriðjudag og fimmtudag. Það verður síðan föstudaginn 7. október sem keppni hefst í 1. deild karla og í 1. deild kvenna er fyrsti leikur á dagskrá 11. október. Í 2. deild kvenna fer boltinn af stað 8. október og í úrvalsdeild er fyrsta umferð fimmtudaginn 13. október. Í unglingaflokki kvenna er fyrsti leikur mánudaginn 3. október og í drengjaflokki daginn eftir.