28 sep. 2005Skráning er hafin í utandeildina í körfubolta, sem Breiðablik mun starfrækja í vetur. Skráning fer fram á netfangið utandeild@b-folk.mi.is með því að senda bréf um nafn á liði og forsvarsmanni hópsins, símanúmeri og upplýsingum svo hægt sé að hafa samband við viðkomandi. KKÍ hefur samþykkt þessa utandeild og mun umsjónarmaður hennar verða enginn annar en Pétur Hrafn Sigurðsson fyrrverandi framkvæmdastóri KKÍ. Starfrækt verður aganefnd í deildinni til að taka á agabrotun og úrskurða leikmenn í leikbönn í deildinni, sé þeir t.d. reknir af leilkvelli. Þá verður einnig starfandi dómstóll til að taka á kærumálum sem upp kunnu að koma.