27 sep. 2005UMFN tryggði sér sigur í Reykjanesmóti karla í gær eftir sigur á Stjörnunni. ÍS tryggði sér á sama tíma sigur í Reykjavíkurmóti kvenna með sigri á KR. UMFN hefur sigrað í öllum fimm leikjum sínum í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2006/00002228.htm[v-]Reykjanesmótinu[slod-] og má tapa fyrir UMFG í lokaleik sínum á morgun. Þess má geta að gamla kempan Stefán Bjarkason, sem orðinn er 53 ára, lék með UMFN gegn Stjörnunni á sunnudaginn og skoraði 3 stig á 14 mínútum. ÍS og KR voru bæði taplaus fyrir leikinn í gær, en ÍS vann öruggan sigur 75-37 og tryggði sér [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2006/00002225.htm[v-]Reykjavíkurmeistaratitilinn[slod-]. KR og ÍR mætast í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2006/00002223.htm[v-]Reykjavíkurmóti karla, A-deild[slod-], á fimmtudag. KR hefur unnið alla sína leiki til þessa, en ÍR hefur tapað einum leik eins og Fjölnir. Það getur því komið upp sú staða að þrjú lið verði efst og jöfn takist ÍR og vinna KR. Brokey varð Reykjavíkurmeistari í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2006/00002224.htm[v-]B-deild Reykjavíkurmótsins[slod-] og KR varð Reykjavíkurmeistari í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2006/00002226.htm[v-] unglingaflokki karla[slod-] og í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2006/00002227.htm[v-]drengjaflokki[slod-]. mt: Jeb Ivey hefur farið mikinn með sínum nýju félögum í UMFN. Hann hefur skorað 27 stig að meðaltali í leik í Reykjanesmótinu.