22 sep. 2005Logi Gunnarsson landsliðsmaður hefur skrifað undir eins árs samning við Bayeruth, sem leikur í næst efstu deild körfuboltans í Þýskalandi. Logi lék með Giessen í Bundesligunni á síðustu leiktíð. Lið er Bayreuth er sterkt lið sem ætlar sér upp í efstu deild og eru búið að semja við fleiri sterka leikmenn, þar á meðal einn sem lék með Bayer Leverkusen í Bundesligunni í fyrra. Það er mikil körfuboltahefð hjá þessu félagi og liðið varð til að mynda þýskur meistari árið 1989.