14 sep. 2005Um næstu helgi verður Greifa- og KB-bankamótið í körfuknattleik haldið á Akureyri. Mótið er orðið árviss viðburður hér í bær en að þessu sinni mæta alls átta úrvaldsdeildarlið og því morgunljóst að um hörkumót verður að ræða. Það sem meira er að þá er frítt inn á alla leiki mótsins og því um að gera fyrir alla sem vettlingi geta valdið og skella sér á völlinn og hita upp fyrir átök vetrarins. Liðin sem um ræðir eru, auk gestgjafanna í Þór: ÍR, Njarðvík, KR, Snæfell, Fjölnir, Skallagrímur og nýliðar Hattar. Leikið verður í tveimur riðlum sem spilast á föstudegi og laugardegi. Leikið verður í Höllinni og íþróttahúsi Síðuskóla. Úrslit ráðast svo fyrri part sunnudags. Þess ber að geta að ókeypis er inn á alla leiki mótsins! Hér að neðan má sjá riðlaskiptingu og niðurröðun leikja: Riðlaskipting A – riðill (Höllin): Snæfell, Þór Ak., Fjölnir, ÍR. B – riðill (Síðuskóli): Skallagrímur, Höttur, Njarðvík, KR. Leikir: Föstudagur 10. sept. Höllin kl. 19:00 Snæfell-Þór, Höllin kl. 21:00 Fjölnir-ÍR Síðuskóli kl. 19:00 Skallagrímur-Höttur, Síðuskóli kl. 21:00 Njarðvík-KR Laugardagur 11. sept. Höllin kl. 09:00 ÍR-Snæfell, Höllin kl. 11:00 Þór-Fjölnir Höllin kl. 15:00 Snæfell-Fjölnir, Höllin kl. 17:00 Þór-ÍR Síðuskóli kl. 09:00 KR-Skallagrímur, Síðuskóli kl. 11:00 Höttur-Njarðvík Síðuskóli kl. 15:00 Njarðvík-Skallagrímur, Síðuskóli kl. 17:00 KR-Höttur Sunnudagur 12. sept. Síðuskóli kl. 09:00 A4 – B4, Höllin kl. 09:00 A3 – B3 Höllin kl. 11:00 A2 – B2, Höllin kl. 13:00 A1 – B1 – Úrslit