9 sep. 2005Ísland mætir Rúmeníu í lokaleik B-deildar Evrópumótsins landsliða í Búkarest á morgun laugardag. Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma. Danir hafa þegar tryggt sér sigur í riðlinum, en leikurinn við Rúmeníu skiptir aðeins máli hvað varðar styrkleikaröðun fyrir næstu keppni. Landsliðið kom til Rúmeníu í gær eftir millilendingu í París. Aðbúnaður liðsins gæti verið betri að sögn fararstjóra, en liðið gistur lengst úti í sveit og þarf að keyra í 45 mínútur til að komast í keppnishöllina. Þá eiga menn í miklum erfiðleikum með að komast í netsamband og því er litlar fréttir að hafa af liðinu. mt: Vergil Stanescu var stigahæstur í liði Rúmena gegn Dönum á miðvikudag.