8 sep. 2005Þrátt fyrir tap gegn Rúmeníu, 67-69, í lokaleik sínum í A-riðli B-deildar Evrópukeppni landsliða hafa Danir tryggt sér sigur í riðlinum og munu leika um sæti í A-deildinni. Danir léku ekki vel í Árósum í gær og voru undir 27-36 í hálfleik. Fyrri hálfleikurinn var slakur hjá danska liðinu sem tapaði 16 boltum og hitti úr 1 af 7 vítaskotum í hálfleiknum. Danir réttu úr kútnum í þriðja leikhluta, en í þeim fjórða tók Paul Helcioiu til sinna ráða og tryggði Rúmenum nauman sigur. Stighæstur hjá Dönum voru Soltau með 19 stig, Johansen með 12 stog og Drejer með 10 stig. Hjá Rúmenum var Stanescu með 22 stig og Helcioiu með 16. mt: Christian Drejer náði sér ekki almennilega á strik gegn Rúmenum í gær og var með fjöldan allan af töpuðum boltum