3 sep. 2005Íslenska körfuboltalandsliðið spilar þessa stundina við Danmörku í Keflavík í Evrópukeppninni. Íslenska liðið þarf að vinna leikinn með 11 stiga mun eða meira til þess að eiga möguleika á að vinna riðilinn og komast í úrslitakeppnina um sæti í A-deildinni. Ísland hefur eins stigs forskot í hálfleik, 32-31, eftir að hafa verið sjö stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 19-12. Logi Gunnarsson er stigahæstur í íslenska liðinu með 9 stig en Magnús Þór Gunnarsson hefur skorað 8 stig. Stig íslenska liðsins: Magnús Þór Gunnarsson 8, 2 af 2 í 3ja stiga Friðrik Stefánsson 1, 7 fráköst Jakob Sigurðarson 2 Jón Nordal Hafsteinsson Gunnar Einarsson Jón Arnór Stefánsson 2, 3 villur, 0 af 5 í skotum Helgi Már Magnússon 3 Sigurður Þorvaldsson Arnar Freyr Jónsson Hlynur Bæringsson 7 Logi Gunnarsson 9 Egill Jónasson Christian Drejer hefur skorað 16 stig fyrir Dani í fyrri hálfleik og fiskað auk þess 7 villur á íslensku strákana. Tölur leiksins til þessa: 3ja stiga skotin: Ísland 12/4 (33%) Danmörk 9/2 (22%) Vítaskotin: Ísland 18/14 (78%) Danmörk 13/7 (54%) Fráköstin: Ísland 22 Danmörk 23 Sóknarfráköstin: Ísland 6 Danmörk 5 Tapaðir boltar: Ísland 8 Danmörk 9 Villur: Ísland 13 Danmörk 12 Mynd: Logi Gunnarsson er stigahæstur hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleik með 9 stig en þau komu öll í 1. leikhlutanum.