3 sep. 2005Íslenska körfuboltalandsliðið spilar þessa stundina við Danmörku í Keflavík í Evrópukeppninni. Íslenska liðið þarf að vinna leikinn með 11 stiga mun eða meira til þess að eiga möguleika á að vinna riðilinn og komast í úrslitakeppnina um sæti í A-deildinni. Íslenska liðið hefur eins stigs forskot fyrir síðasta leikhlutan en var mest komið 11 stigum undir, 34-45, um miðjan 3ja leikhluta. Ísland var með eins stigs forskot í hálfleik, 32-31, eftir að hafa verið sjö stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 19-12. Stig íslenska liðsins: Magnús Þór Gunnarsson 13 Friðrik Stefánsson 3 Jakob Sigurðarson 2 Jón Nordal Hafsteinsson 2 Gunnar Einarsson Jón Arnór Stefánsson 5 Helgi Már Magnússon 3 Sigurður Þorvaldsson Arnar Freyr Jónsson Hlynur Bæringsson 7 Logi Gunnarsson 13 Egill Jónasson Mynd: Logi Gunnarsson er stigahæstur hjá íslenska liðinu í leiknum til þessa með 13 stig.