3 sep. 2005Íslenska karlalandsliðið tapaði með 17 stigum fyrir Dönum í Keflavík, 60-77, en Danir unnu síðustu sex mínútur leiksins með 17 stigum (5-22). Þar með ljóst að íslenska landsliðið á ekki möguleika á að vinna riðilinn og kemst þar með ekki í hóp A-þjóða að þessu sinni. Logi Gunnarsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 18 stig en Magnús Þór Gunnarsson kom næstur með 15 stig. Ísland hafði yfir eftir fyrsta leikhluta, 19-12, eftir annan leikhluta, 32-31 og eftir þriðja leikhluta, 48-47 en leikur íslenska liðsins hrundi á lokamínútum leiksins. Stig íslenska liðsins: Logi Gunnarsson 18 Magnús Þór Gunnarsson 15, hitti úr 3 af 7 3ja stiga, 5 villur Friðrik Stefánsson 8, 9 fráköst Hlynur Bæringsson 7 Jón Arnór Stefánsson 5, hitti úr 1 af 10 skotum, 5 villur Jakob Sigurðarson 2 Jón Nordal Hafsteinsson 2 Helgi Már Magnússon 3 Gunnar Einarsson, Egill Jónasson og Sigurður Þorvaldsson skoruðu ekki og Arnar Freyr Jónsson fékk ekki að koma inná. Tölur leiksins: 3ja stiga skotin: Ísland 24/7 (29%) Danmörk 20/7 (35%) Vítaskotin: Ísland 34/25 (74%) Danmörk 29/16 (55%) Fráköstin: Ísland 32 Danmörk 47 Sóknarfráköstin: Ísland 9 Danmörk 10 Tapaðir boltar: Ísland 17 Danmörk 21 Villur: Ísland 29, Danmörk 25 Christian Drejer var óumdeildanlega maður leiksins en hann skoraði 26 stig, tók 10 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og fiskaði auk þess 12 villur á íslensku strákanna. Mynd: Logi Gunnarsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 18 stig.