1 sep. 2005Mótanefnd KKÍ hefur ákveðið að veita Skólafélagi Fjölbrautarskóla suðurlands, FSU, sæti í 1. deild karla, sæti sem HHF afþakkaði fyrr í sumar. HHF mun ekki taka þátt í Íslandsmóti í vetur undir merkjum Héraðssambandsins Hrafnaflóka, þar sem eitt aðildarfélag sambandsins, Hörður Patreksfirði, tekur einnig þátt í mótinu. Slíkt stenst ekki lög og reglur íþróttahreyfingarinnar. Þess í stað munu HHF-menn keppa undir merkjum Hvíta riddarans úr Mosfellsbæ í 2. deildinni í vetur. Skólafélag FSU er nýstofnað félag sem hlotið hefur bráðabirgðaaðild að HSK. Félagið er tilkomið vegna körfuboltaakademíunnar sem starfrækt verður við skólann í vetur að frumkvæði Brynjars Karls Sigurðssonar. FSU mun senda lið til keppni í unglingaflokki karla og drengjaflokki, auk meistaraflokks karla.