31 ágú. 2005Stjórn UMFN tilkynnti KKÍ í morgun þá ákvörðun sína að óumflýjanlegt væri að draga lið félagsins í 1. deild kvenna úr keppni. Mótanefnd KKÍ ákvað að bjóða KR, sem féll úr deildinni í vor, að taka sætið og hefur félagið þekkst það boð. Mótanefnd KKÍ harmar örlög kvennaliðs Njarðvíkur og vonar að félagið muni aftur ná að tefla fram öflugu kvennaliði. Jafnframt býður mótanefnd lið KR aftur velkomið í efstu deild.