30 ágú. 2005Finnar komu fram hefndum í síðari vináttuleik sínum við Dani í Århus í gærkvöldi. Nú unnu Finnar 64-76, þrátt fyrir að Danir byrjuðu betur í leiknum. Slæmur kafli Dana í upphafi síðari hálfleik reið baggamuninn í lokin. Danir réðu heldur ekkert við fyrrum leikmann Atlanta Hawks, Hanno Möllöla, sem skoraði 28 stig og hirti 11 fráköst. Hjá Dönum var Christian Drejer stigahæstur með 18 stig. Danska landsliðið kemur til Íslands á fimmtudag, en leikur Íslands og Danmerkur í EM verður í Keflavík kl. 14:00 á laugardaginn. mt: Christian Drejer var aftur stigahæstur í liði Dana, gerði nú 18 stig.