29 ágú. 2005Félögin á vestfjörðum boða til æfingabúða í íþróttahúsinu Torfnesi á Ísafirði dagana 3. og 4. september n.k. Búðirnar standa frá kl. 10 – 17 á laugardag og 09 – 15 á sunnudag og eru fyrir alla grunnskólakrakka á vestfjörðum. Með búðunum hefst körfuboltastarf félaga á vestfjörðum með formlegum hætti. Yfirþjálfarar eru þeir Baldur Ingi Jónasson frá KFÍ og Brynjar Þór Þorsteinsson frá Herði á Patreksfirði. Þeir munu ásamt fleiri þjálfurum stjórna dagskrá æfingabúðanna. Farið verður í helstu undirstöðuatriði körfuknattleiks og keppt verður í liða og einstaklingsgreinum. Kostnaður er kr. 5.000 á mann og veittur er 50% systkynaafsláttur. Í boði er gisting í menntaskólanum fyrir þá sem það þurfa og þurfa þeir sem nýta sér það að taka með sér svefnpoka. Innifalið í gjaldinu er fæði bæði á laugardag og sunnudag. Taka þarf fram við skráningu hvort óskað sé gistingar. Skráning fer fram á netfanginu kjons@simnet.is og þarf kennitala að fylgja með. Hægt verður að greiða fyrir búðirnar við upphaf þeirra, en einnig má leggja inn á reikning unglingaráðs KFÍ 556-26-8555 kt. 651093-2449. Nánari upplýsingar veitir Karl Jónsson á netfanginu kjons@simnet.is eða í heimasíma 456 5515 á milli kl. 20 og 22 á kvöldin. Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi á miðvikudagskvöldið 31. ágúst.