27 ágú. 2005Íslenski hópurinn hefur slakað á í dag her i Xian fyrir leikinn á morgun við Kína. Eftir æfingu var farið í skoðunarferð og m.a. voru hinir frægu Terra Cotta-hermenn skoðaðir. Öryggisgæslan er all nokkur í kringum okkur, en allstaðar þar sem við komum vekur hópurinn mikla athygli. Eftir skoðurnarferðina þá hittum við kínversku leikmennina hér á hótelinu og var Yao Ming mættur med þeim. það er orðið öruggt að hann spilar báða leikina. Samkvæmt kínverskum fjölmiðlum í dag það sætta Kínverjar sig ekki við annað en stórsigur á morgun gegn okkur. það á eftir ad koma á ljós hvernig leikurinn fer en samkæmt Sigurði Ingimundarsyni landsliðsþjálfara verður ekkert gefið eftir og strákarnir hafa fulla trú á því að við getum staðið í Kínverjunum. mt: Terra Cotta-hermennirnir eru tvímælalaust eitt af furðuverkum veraldar.