26 ágú. 2005Axel Nikulásson, fyrrum landsliðsmaður og starfsmaður íslenska sendiráðsins í Kína, tók á móti landsliðinu við komuna til Beijing í gær eftir langt og strang ferðalag. Flogið var til Kaupmannahafnar á miðvikudagsmorgun, þar sem við tók átta tíma bið eftir fluginu til Kína. Hópurinn notaði tækifærið og kíkti á lífið í kóngsins Köben. Síðan tók við átta tíma flug til Beijing, en vegna tímamismunar var lent og hádegisbil í Beijing, en þá mun klukkan hafa verið 4 að nóttu á Íslandi. Hópurinn var því ansi þreyttur þegar komið var á leiðarenda, en einhverjir náðu að hvíla sig á leiðinni. Í gær var síðan tekin létt æfing og mættu starfsmenn sendiráðsins á æfinguna, en þeir munu einnig mæta á leikinn í Xian á sunnudag. Í fjölmiðlum hér í Kína er talað um að aðalastæða þess að íslenska liðinu var boðið hingað sé sú að þeir meti íslensku strákana svipað og lið Suður-Kóreu, sem sagt snöggir og hittnir. Suður-Kórea er með Kína í riðli á Asíuleikunum. Yao Ming verður með í báðum leikjunum samkvæmt því sem okkur er sagt og miklar öryggisráðstafanir verda því þegar líður á því hann er mjög, mjög vinsæll hér. Vonandi verða fleiri fréttir af okkur síðar í dag, en mjög erfitt er að ná netsambandi hér, en við reynum áfram. Í dag er ferðinni síðan heitið til Xian.