16 ágú. 2005Núna er hálfleikur í seinni vináttuleiknum við Hollendinga. Hollendingar leiða með 6 stigum en staðan er 44-38. Leikurinn er jafn og skemmtilegur en allir leikmenn íslenska liðsins hafa spilað og allir hafa skorað fyrir utan Gunnar Einarsson. Egill Jónasson tróð með tilþrifum eftir sendingu frá Arnari Frey Jónssyni undir lok 2.leikhluta.