15 ágú. 2005Ísland vann Holland 78-74 í landsleik í Groningen í kvöld, en okkar menn höfðu forystu eftir alla fjórðunga leiksins. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik og skiptust liðin á að hafa 2-3 stiga forystu allan fyrri hálfleikinn. Staðan í hálfleik 36-37 fyrir Ísland. Stórleikur okkar manna í þriðja leikhluta skóp svo sigurinn en strákarnir unnu þriðja leikhluta 16-30. Hlynur Bæringsson fór fyrir okkar mönnum með 14 stig í leikhlutanum og Jón Arnór Stefánsson skoraði 9 stig í þremur þriggja stiga skotum í 3. leikhluta. Hollendingar hófu 4. leikhluta með látum og skoruðu 18 stig gegn fyrstu 2 stigum íslenska liðsins. Hollendingar komust yfir og leiddu 70-69. Strákarnir tóku sig saman og lokuðu vörninni og með góðri vörn og góðri nýtingu í vítum vannst að lokum sigur 74-78. Tölfræði úr leiknum: Jón Arnór Stefánsson, 26 stig, 5 fráköst, 1 stoðs., Hlynur Bæringsson, 22 stig, 11 fráköst (6 sóknarfráköst), 2 stoðsendingar, Logi Gunnarsson, 10 stig, 6 fráköst (5 sóknarfráköst), 1 stoðs., Jakob Sigurðarson, 7 stig, 3 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson, 5 stig, Friðrik Stefánsson, 2 stig, 6 fráköst, Sigurður Þorvaldsson, 2 stig, 3 fráköst, 1 fráköst. Jón Nordal Hafsteinsson, 2 stig, 1 frákast, Helgi Magnússon, 2 stig, 2 fráköst, 1 stoðsending. Egill Jónasson 1. frákast. Byrjunarlið Íslands var þannig skipað: Jón Arnór Stefánsson, Magnús Þór Gunnarsson, Logi Gunnarsson, Hlynur Bæringsson og Friðrik Stefánsson. mt: Hlynur Bæringsson átti góðan leik, með 22 stig, 11 fráköst (6 sóknarfráköst) og 2 stoðsendingar.