6 ágú. 2005Stelpurnar í U-18 landsliðinu unnu næsta auðveldan sigur gegn Luxembourg 68-47. Stelpurnar tóku leikinn strax í sínar hendur og komust í 15-0 en staðan eftir 1. leikhluta var 24-4 fyrir Ísland. Stelpurnar leiddu 43-14 í hálfleik. Sigurinn varð aldrei í hættu en Luxembourgarar spiluðu afar fast ísíðari hálfleik og vor stelpurnar okkar með varann á sér varðandi meiðsl. Á morgun (sunnudag 7.ágúst) mun íslenska liðið mæta því úrkaínska kl. 16:15 að íslenskum tíma og sigurvegari í þeirri viðureign kemst í efri-hluta keppnina. Leikurinn er því afarmikilvægur fyrir stelpurnar, sem eru að stefna að því að komast úrslitakeppnina. Helena Sverrisdóttir skoraði 24 stig, tók 13 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. María Ben 10 stig, 11 fráköst, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 11 stig, Ragnheiður Theódórsdóttir 10 stig, Bára Hálfdánardóttir 6 stig, Helga EInarsdóttir 5 stig og 8 fráköst,Guðrún Ámundadóttir 4 stig og Sigrún Ámundadóttir 1 M.t.t Helga Einarsdóttir, hefur verið veik en harkaði af sér og spilaði í 13mínútur og setti 5 stig og tók 8 fráköst!