4 ágú. 2005Í kvöld klukkan 18.30 að íslenskum tíma fer fram leikur Íslands og Slóvena í milliriðli Evrópukeppni U16 karla. Leikurinn er mikilvægur þar sem að sigurvegarinn tryggir sér sæti í A deild að ári og rétt á að leika um 9.- 12. sætið í mótinu. Í dag varð ljóst að það verða Grikkir sem enda í þriðja sæti í hinum milliriðlinum og Belgar í því fjórða og jafnframt að Serbar hafi unnið riðilinn og Ísrael varð í öðru sæti. Nú stendur yfir leikur Letta og Pólverja og gæti sá leikur skipt töluverðu upp á framhaldið. Ef Lettar sigra þá getur Ísland aldrei farið neðar en þriðja sætið og reyndar ná þeir öðru sæti með sigri gegn Slóvenum. Ef Pólverjar sigra aftur á móti þá nær Ísland fyrsta sætinu í milliriðli með sigri en fjórða sætinu ef leikurinn gegn Slóvenum tapast. Eins og sjá má er dramatíkin mikil og Ísland getur enn lent í öllum fjórum sætunum. Leikur Íslands og Slóveníu fer fram beint á netinu og má finna tengilinn [v+]http://www.fibaeurope.com/Default.asp?cid={A440F8BD-44CB-4159-9FC6-547E93455FE2}&pageID={51C21BF5-96C8-4F78-8622-50CD93EF8465}&compID={89EB60F8-7F8F-4FFB-9427-6103055F3511}&season=2005&roundID=4365&[v-]Hérna[slod-] og þar sem Ísland - Slóvenía er skráður ætti að koma rauðum stöfum rétt fyrir leik "LIVE" og þar klikkar fólk til að fá leikinn beint. Fyrir þá sem fylgjast með, góða skemmtun ! Við flytum svo fréttir af leikjunum tveimur strax að leik Íslands loknum í kvöld. ÁFRAM ÍSLAND !!!