1 ágú. 2005U16 ára lið karla er komið til Leon en þangað komu þeir eftir hádegi í dag. Liðið lék í riðlakeppninni í 70 þúsund manna bæ er heitir Ponferrada en eru nú komnir til Leon sem er 150 þúsund manna bær. Hópurinn kom sér fyrir á nýju hóteli í dag sem er reyndar ekki alveg jafn flott og það fyrra en menn una sér vel. Liðið æfði í kvöld í höllinni sem næstu 3 leikir fara fram í og þar er því miður ekki loftkæling eins og í Ponferrada og alveg ljóst að eitthvað verður þambað af vatni næstu daga á meðan leik stendur. Fyrsti leikurinn er svo annað kvöld, kl 20.30 að staðartíma eða kl 18.30 að íslenskum tíma og eigum við von á því að leikurinn verði beint á heimasíðu mótsins. Fyrsti andstæðingurinn í milliriðlinum er Lettland og verður um hörkuleik að ræða. Lettar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Serba í riðlakeppninni og töpuðu svo naumlega með 2 stigum gegn núverandi Evrópumeisturum Frökkum sem hafa reyndar enn sem komið er ekki tapað leik. Þeir hafa innan sinna raða tvo hávaxna bakverði sem hafa farið mikinn í mótinu til þessa og verður verðugt verkefni að halda aftur af þeim. Á miðvikudag verður leikið gegn Póllandi og er sá leikur kl 16.15 að íslenskum tíma og svo á fimmtudag er leikið gegn Slóveníu kl 18.30 að íslenskum tíma. Annars er gott hljóð í hópnum og við sendum bestu kveðjur heim. Af Sigmundi Herbertssyni FIBA dómara er það að frétta að hann átti afmæli í dag kallinn. Simmi hefur verið að dæma hörkuleiki í þessu móti, síðast leik Tyrkja og Úkraínu sem fór í framlengingu en þessi tvö lið urðu efst í D riðli. Óskum Simma til hamingju með daginn.