31 júl. 2005Íslenska stúlknaliðið sigraði Austurríki í dag með 66 stigum gegn 42. Stúlkurnar frá Austurríki leiddu í hálfleik með fjórum stigum. Það var hins vegar allt annað íslenskt lið sem mætti til leiks í seinni hálfleik og uppskar 24 stiga sigur sem var síst of stór. Atkvæðamestar í dag voru þær Alma Rut með 16 stig, Unnur Tara með 15 og Kara með 9. Kara tók jafnframt 11 fráköst í leiknum en hún var þriðji frákastahæsti leikmaður mótsins. Glæsilegt hjá Köru! Í dag fylgdumst við með leik Slóvaka og Eista þar sem Slóvakar höfðu sigur en liðin fara bæði upp í A - deild á næsta ári svo ljóst er að Evrópukeppnin verður ekki í Eistlandi að ári. Nú er mikill gleðidagur á enda en stelpurnar eru að pakka, skemmta sér með öðrum liðum hér á gistiheimilinu og skiptast á bolum. Við leggjum af stað heim klukkan fimm í fyrramálið, tvö að íslenskum tíma, millilendum í Kaupmannahöfn og komum svo heim í faðm fjölskyldna um hádegisbil að íslenskum tíma. Þökkum góðar kveðjur frá Spáni og óskum strákunum góðs gengis í milliriðlinum.