30 júl. 200516 ára drengjalandsliðið var rétt í þessu að ljúka leik gegn Króatíu. Strákarnir töpuðu leiknum 77-74 í hörkuleik og var allt annað að sjá til íslenska liðsins í dag frá leiknum gegn Grikkjum í gær. Íslenska liðið byrjaði leikinn með látum og voru strákarnir að hitta sérlega vel og kom það Króötum í opna skjöldu. Liðin skiptust á að hafa forystu í fyrsta leikhluta en Króatarnir skoruðu 3ja stiga körfu á flautunni og komust yfir 28-26. Í öðrum leikhluta hikstaði sóknarleikurinn örlítið og það var eiginlega sárt að fara til búningsherbergja 12 stigum undir, 50-38. Í gær var líka 12 stiga munur í hálfleik og Einar Árni lagði mikla áherslu á það í dag að liðið kæmi klárt til leiks í síðari hálfleikinn og það varð raunin. Liðið var að leika vel lengstum í þriðja leikhluta en það verður að segjast eins og er að Króatar hittu á köflum frábærlega og þeir náðu mest 17 stiga forskoti í síðari hálfleik. Í fjórða leikhluta var hins vegar eitt lið á vellinum. Drengirnir skelltu í lás í vörninni og Hjörtur Hrafn fann sig vel, bæði að klára vel og einnig að finna samherjana sem nutu góðs af því að Hjörtur fékk tvo menn í sig. Strákarnir skoruðu 12 stig í röð og þegar 26 sekúndur voru eftir var staðan orðin 77-74 og Króatar tóku leikhlé. Vörnin hélt síðustu sókn Króatana en tíminn á klukkunni var ekki nægur til þess að ná skoti og þriggja stiga ósigur því staðreynd. Eins og áður sagði þá var allt annað að sjá til drengjanna í dag. Baráttan var gríðarleg og vörnin í síðari hálfleik það besta sem strákarnir hafa sýnt til þessa. Lykilmenn stigu upp í dag eftir dapran dag í gær og strákarnir eru staðráðnir í því að fylgja þessum leik eftir á morgun gegn Rússum, en Rússar sigruðu Króata í hörkuleik í gær. Hjörtur Hrafn var atkvæðamikill í dag, og Þröstur, Rúnar Ingi og Elías voru að hitta mjög vel. Þá átti Hjalti Friðriksson góða innkomu af bekknum. Stig Íslenska liðsins: Þröstur Leó 20, Hjörtur Hrafn 19, Rúnar Ingi 14, Elías 10, Hjalti 8, Páll Fannar 3. [v+]http://www.fibaeurope.com/Default.asp?cid={A440F8BD-44CB-4159-9FC6-547E93455FE2}&gameID=4346-C-3-2&compID={89EB60F8-7F8F-4FFB-9427-6103055F3511}&season=2005&roundID=4346&teamID=&[v-]Tölfræði leiksins[slod-] Á morgun leikur liðið gegn Rússum. Leikurinn hefst 13.45 eða 11.45 að íslenskum tíma og verður væntanlega hægt að fylgjast með leiknum beint á heimasíðu mótsins.