21 júl. 2005Snemma í gærmorgun lögðu stelpurnar í u - 16 liðinu af stað til Tallinn þar sem Evrópukeppnin hefst á morgun. Komið var á áfangastað laust fyrir klukkan 19 að staðartíma sem er þremur tímum á undan þeim íslenska. Leiðsögumaður hópsins, hinn 25 ára gamli Cliff, tók á móti hópnum á flugvellinum og hefur nánast fylgt okkur hvert fótmál síðan og greitt götu okkar. Gist er í á stúdentagarði við Tækniháskólann sem er í úthverfi Tallinn. Hann er afar sovéskur í útliti en hefur nýlega verið tekinn í gegn að innan og er aðstaða ágæt, m.a. nettenging í herbergi fararstjóra. Keppnishöllin er í göngufæri og virðist aðstaða vera góð en þar verður fyrsta æfing stelpnanna kl. 19 í kvöld. Fyrsti leikur þeirra er á morgun við Slóvena kl. 17 að staðartíma. Í dag er rólegur dagur hjá liðinu fram að æfingu, aðstæður og umhverfi kannað í góðu veðri, u.þ.b. 20° hita. Hér er ýmislegt fróðlegt að sjá enda heimsstyrjöldinni síðari rétt nýlokið - en Eistlendingar líta svo á að henni hafi lokið 31.ágúst 1994 þegar sovéski herinn yfirgaf loks landið eftir að hafa setið hér frá 1940. Við óskum u - 18 strákunum til hamingju með sigurinn og biðjum fyrir bestu kveðjur til allra heima.