21 júl. 2005Það kemur í ljós í dag hvort að íslensku strákarnir komast í undanúrslit B-deildar Evrópukeppni drengja 18 ára og yngri. Leikur Íslands gegn Úkraníu hefst klukkan 12:45 að íslenskum tíma. En á undan leika Bosníumenn og Austurríki, sigri Bosnía með minna en 34 stiga mun komast íslensku strákarnir áfram sjálfkrafa. En sigri Austurríkismenn hinsvegar þurfa strákarnir að sigra Úkraníu. Stemmningin í hópnum er mjög góð og var haldinn fundur í morgun í skógarkjarri hér skammt frá og menn viðraðir í leiðinni. Allir leikmenn eru heilir, en lemstraðir eftir átök síðustu daga. Í morgun fór Guðjón sjúkraþjálfari á leið heim, en hann hefur reynst okkur dýrmætur í að halda leikmönnum gangandi, við þökkum Guðjóni og fjölskyldu kærlega fyrir samveruna. Enn eru hér fjórir foreldrar sem styðja vel við bakið á okkur og hafa þau staðið sig mjög vel að hvetja mannskapinn áfram. Baráttukveðjur heim Björn og Ingi