20 júl. 2005Það var dauft hljóðið í íslenska hópnum í gær eftir súrt tap gegn Austurríkismönnum, en liðið er komið í sömu stöðu og í C-riðlinum. Bosnía tapaði í gær sínum fyrsta leik í mótinu, fyrir Úkraníu og er leikurinn í dag því mjög mikilvægur fyrir bæði lið. Strákarnir voru í sömu stöðu fyrir leik sinn gegn Makedóníu í C-riðlinum og nú reynir á mannskapinn. Liðið æfði í morgun og eru allir staðráðnir að leggja allt í sölurnar fyrir sigur í dag. Til þess að liðið eigi möguleika á að komast í tvö efstu sætin þurfa allir leikmenn að spila af eðlilegri getu, en því miður hefur liðið hitt afleitlega á mótinu hingað til. Varnarleikurinn hefur verið þokkalegur og barátta. Með réttu hugarfari er allt hægt og með það að leiðarljósi förum við bjartir í leikinn í dag sem hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma. Strax á eftir leika síðan Úkranía og Austurríki klukkan 19:15 að staðartíma. Hörður Helgi Hreiðarsson er veikur og lék ekkert í gær, en hann er að hressast. Aðrir eru heilir heilsu en lykilmenn eru lemstraðir eftir mikla baráttu og hefur Guðjón sjúkraþjálfari tekið vel á. Stemmningin í hópnum er góð og látum við ekki bagalegar aðstæður hafa mikil áhrif á okkur. Við erum vel studdir af foreldrum sem eru hérna með hópnum. Jakuvici - Dopri kveðjur, Björn og Ingi