16 júl. 2005Íslenska U-20 ára landsliðið mátti þola naumt tap fyrir Albönum í lokaleik sínum í Evrópumótinu í Varna í Búlgaríu í morgun, 92-95. Íslenska liðið var yfir eftir þrjá leikhluta 71-68, en náði ekki að fylgja því eftir á lokakaflanum. Albanía hafði yfir eftir fyrsta fjórðun 22-28 og einnig í leikhléinu, 45-50. Sem fyrr sagði náði íslenska liðið sér vel á strik í þriðja fjórðungi en tókst ekki á láta kné fylgja kviði. Sveinbjörn Claessen úr ÍR og Viðar Örn Hafsteinsson úr Hetti fóru fyrir íslenska liðinu í leiknum og skoraðu 27 stig hvor. Þar að auki var Viðar Örn með 9 fráköst og 5 stolna bolta. Ágúst Angantýsson úr Breiðabliki var einnig með 9 fráköst. Þá voru þeir frændur og félagar úr Hamri/Selfossi Bjarni Bjarnason og Ragnar Gylfason drjúgir í leiknum, Bjarni var með 15 stig og Ragnar með 10. Í gær mátti liðið þola stóran ósigur fyrir Portúgölum 62-114. Í þeim leik var það einkum slæmur þriðji fjórðungur sem varð til þess að ósigurinn varð jafn stór og raun ber vitni. Viðar Örn var stigahæstur í leiknum með 19 stig, en Sveinbjörn Claessen tók flest fráköst, eða 6 talsins. Þar með hefur U-20 ára liðið lokið keppni í Búlgaríu og kemur heim á þriðjudag. Liðið átti við ofurefli að etja í öllum leikjunum nema ef til vill þeim síðasta. Undantekningalaust var við mun hávaxnari andstæðinga að etja og erfitt er að eiga við slíkt leik eftir leik. Neðsta sætið í mótinu varð því hlutskipti liðsins, en leikmennirnir eru reynslunni ríkari. Meðfylgjandi mynd er ef til vill lýsandi dæmi um þetta, en á henni sést Hörður Harðarson 1,88 m takast á við miðherja Georgíumanna sem er um 2,20 m á hæð. Stuttu eftir að myndin var tekin var þeim báðum vísað af leikvelli fyrir full mikla kappsemi.