16 júl. 2005Á morgun leikum við síðasta leikinn i C-riðli og það gegn Finnum. Finnar hafa unnið báða sína leiki, gegn Makedoníu og Svíum. Til þess að komast uppúr riðlinum þurfum við að vinna Finna á morgun en það er ekki bara svo einfalt. Ef að Svíar vinna Makedoníu á morgun, þurfum við að vinna Finna með 6 stigum eða meira. Ef að Makedoníustrákar vinna Svía þá nægir sigur gegn Finnum. Allt þetta skýrist a morgun. Það var allt annað lið sem mætti til leiks gegn Makedoníu. Árni Ragnarsson nýtti tækifærið sitt vel í byrjunarliðinu og skoraði 17 stig og tók 12 fráköst. Brynjar Þór var stigahæstur með 20, Pavel var með 15 stig og 16 fráköst ásamt því ad gefa 7 stoðsendingar. Ólafur Torfa skoraði 11 stig og tók 9 fráköst. Öllum drengjunum líður vel og eru allir i góðu standi. Með DOPRI kveðju frá Slóvakíu, Björn og Ingi Þór