16 júl. 2005Ísland sigraði Makedóníu 79-69 í Evrópukeppni U-18 ára landsliða pilta í Ruzomberkok í Slóvakíu í dag. Ísland var undir 65-67 þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum, en tókst að tryggja sér mikilvægan tíu stiga sigur með því að skora 14 stig gegn 2 á endasprettinum; sögufrægur tölur sem reydust happatölur Íslands í dag. Samkvæmt skilaboðum frá Inga Þór Steinþórssyni þjálfara liðsins þá var Brynjar Þór Björnsson stigahæstur með 20 stig, þar af 16 í síðari hálfleik, Árni Ragnarsson skoraði 17 stig og tók 12 fráköst, Pavel Ermolinskij var með 15 stig og 16 fráköst og Ólafur Torfason var með 11 stig og 9 fráköst. Stigahæstur Makedóníumanna var Kostoski með 24 stig. Því miður er ekki að hafa nánari fréttir af leiknum, en úrslit frá mótinu eru ekki uppfærð á vef FIBA Europe, en aðstandendur íslenska liðsins í Ruzomberok eiga óhægt um vik að komast í tölvusamband við umheiminn. Á [v+]http://basketbal.ruzomberok.sk/rozpis.php[v-]vef mótsins[slod-] er hægt að sjá úrslit leikja, en þegar þetta er skrifað liggja ekki fyrir úrslit í leik Svía og Finna. Ísland mætir Finnlandi á morgun í leik sem skera mun úr um hvort Ísland á möguleika á einu af efstu sætunum í mótinum eða ekki.